STOP THE TRAFFIK

Powered by Blogger

föstudagur, febrúar 09, 2007

Í Húnaþingi

Jæja, þá erum við strákarnir komnir í Húnaþing vestra. Í nístingskuldann sem hér er. Ferðalagið tók allt að 13 klukkutíma - var langt en kannski ekkert svo strangt. Strákarnir voru alveg til fyrirmyndar, það var bara í biðröðinni að innritunarborðinu á Kastrup sem þeir áttu erfitt - skiljanlega! Við þurftum að standa í röð þar í rúmlega hálftíma!

En allavega, mér finnst ég bara hafa verið hér fyrir ca mánuði síðan! Það er ótrúlegt að hugsa til þess að við séum búin að búa úti í hálft ár! Ótrúlegt.

Ég ætla að skreppa með Sollu á Akureyri á sunnudaginn. Ætlum að hafa smá rauðvínssötur! Ekki veitir af að fá smá aðstoð við þessa rauðvínsdrykkju mína.

Heyrumst... eða kannski bara sjáumst!