STOP THE TRAFFIK

Powered by Blogger

sunnudagur, febrúar 25, 2007

Allt annað en Eurovision!

Já, eða þannig!
Palli kom heim í gær eftir viku útlegð. Vinnan skilurðu! Hann var að keyra flutningabíl einhverstaðar norðurfrá hjá Álaborg eða eitthvað í rosa snjó og bara læti, sko. Þið sjáið hvað ég set mig mikið inn í vinnurútínuna hans. :-) En það er gott að fá hann heim!

Við áttum von á gestum í dag. Ég bakaði köku og bjó til brauðrétt. Um kl. 3 hringdu verðandi gestirnir og sögðust seinka um a.m.k. 30 mín. Það var allt í lagi og ég ákvað að baka nokkrar pönnukökur því börnin yrðu svo mörg en um 20 mín seinna hringdu þau aftur og sögðust alls ekki komast - ekki í augnablikinu allavega - því bíllinn neitaði að fara í gang. Nú voru góð ráð dýr - ja, allavega ekki gefins - og var hringt í Ingu og Hjalta. Þau voru ekki heima svo við hringdum í Regínu og Klaus sem þáðu kaffiboð. Hjúkkit. Stuttu seinna hringdi Hjalti og ég bauð þeim að koma líka. Svo þetta reddaðist allt og nú bíðum við bara spennt eftir upprunalegu gestunum.

Það var annars alveg yndislegt veður hér í dag. Við búum enn á Mallorka, svona næstum því. Ég held að það hafi verið um 10 stiga hiti hér í morgun, logn og fuglasöngur. Ekta vorveður! Já, það er gott að búa í útlöndum!

Æi, það hefur alveg gleymst að minnast á að það hefur fjölgað í fjölskyldunni um tvo. Gerðist meira að segja um síðustu helgi og það er bara ekki minnst einu orði á það! Eyþór eignaðist tvo hamstra um síðustu helgi. Þeir eru ferlega sætir, eru sennilega kallaðir dverghamstrar - án þess að ég viti það, nema þeir séu extra fíngerðir. Okkur var sagt að þetta væru karl og kona, ég vona að það sé ekki satt og krossa fingur svona til öryggis. Þeir komu í ferlega sætu búri, með hringstiga upp og ofan á þakinu var hljól sem þeir notuðu óspart. Á nóttunni! Öllum öðrum fjölskyldumeðlimum til mikils ama! Þeir áttu nefnilega til að bera mat í hjólið og hlaupa svo af öllum kröftum svo hringlaði í matnum. Ferlega leiðinlegt að vakna upp við þetta á nóttunni. Þetta hjól ofan á þakinu var svo líka óþrifalegt með eindæmum. Það voru örlítil göt á því, nógu stór til að sag og matur spýttist út um allt gólf. Við Hinrik gerðum okkur því ferð í gæludýrabúðina til að kaupa annað hjól sem færi inn í búrið. Í búðinni sá Hinrik svartan fugl í búri, og ég sagði honum að segja Halló við hann. Viti menn, fuglinn svaraði. Hinrik var steinhissa en lét ekkert slá sig út af laginu og spurði bara: "Hvað ert þú að gera hér?". Eitthvað fannst fuglinum þetta skrítin spurning, og lét standa á svari. Það endaði svo með því að hann sagði bara aftur Halló. Hinrik lét það gott heita.
Og þetta var sagan um gæludýrin!